top of page

Romance

 

 

Skylduverkefni (öll verkefnin á að gera á ensku)

 

1. Í þessu merki er unnið með rómantískar sögur. 

 

2. Búðu til hugarkort (með a.m.k. 10 blöðrum)

Náðu í app til að vinna hugarkortið t.d. Total recall,  

Inspiration eða eitthvað annað sem hentar þér betur

(Leitarorð á Appstore: Mind map). Það má líka teikna 

hugarkortið á blað. Sendu á showbie. 

 

3. Búðu til uppkast að sögunni:

Þú ætlar að æfa þig að búa til setningar sem 

innihalda samheiti, lýsingarorð og fjölbreyttar sagnir eins

og sýnt er á upphafssíðunni (sjá HÉR). Þú þarft ekki að 

senda uppkastið á showbie. 

 

4. Tilbúin saga þarf að vera myndskreytt.

Notaðu book creator, story creator, comic maker eða 

eitthvað annað app sem hentar þér.

Lágmarks orðafjöldi:  200 orð

Sendu á showbie. 

 

 

Valverkefni - veldu 1 (verkefnin á að gera á ensku)

Mundu að skila verkefnum á showbie. 

 

A. Búðu til krossgátu sem byggir á sögunni þinni (orðin

sem þú notar þurfa að koma fyrir í sögunni). 

Lágmark 30 orð. Taktu mynd af krossgátunni. 

 

B. Búðu til stiklu (trailer) sem byggir á sögunni þinni. 

Ef vinir ákveða að vinna saman þá þarf stiklan að vera lengri.

 

C. Búðu til kynningu um ástarsögur þar sem þú segir t.d.

frá frægum ástarsögum, setur link inn á myndir eða myndbönd

sem tengjast efninu. 

 

D. Búðu til lag og texta sem passar vel við ástarsögu. 

Þú getur notað garage band eða annað sambærilegt app. 

Lagið þarf að vera a.m.k. 1 mínúta. 

 

E. Búðu til 20 spurningar um ástarsögur /rómantískar myndir. 

Þú getur notað kahoot.com og búið til spurningakeppni. 

 

 

 

 

 

 

 

bottom of page