top of page

Þátíð reglulegra sagna

 

Einfalda reglan um þátíð sagnorða er að þau bæta við sig endingunni –ED.

Dæmi:

 

I PLAY-ED ice hockey last week.

They PAINT-ED their house red.

My grandmother VISIT-ED me on Sunday.

 

Undantekning 1:

Ef sagnorðið endar á –e, þá bætist bara við –d, það þarf ekki tvö e í röð:

 

Tom LIVE-D in London when he was younger.

 

 

Undantekning 2:

Ef sagnorðið endar á EINUM SÉRHLJÓÐA OG EINUM SAMHLJÓÐA, eins og til dæmis:

ST – O – P 

...þá tvöfaldast samhljóðinn, svona:

Anne STOP-PED smoking last summer.

 

Eða svona:

P – A – T 

He PAT-TED her on the head.

 

Undantekning 3:

Ef sagnorðið endar á –y, eins og til dæmis:

CARR-Y

...þá breytist Y í I í þátíð, svona:

Henry CARR-IED his suitcase to the hotel.

Nú eða svona:

CR-Y

I CRI-ED a river over you.

 

Undantekning 4:

Fjölmörg algeng sagnorð á ensku beygjast óreglulega, þ.e. þau taka sér ekki –ED í þátíð. Við lærum um þau síðar en nokkur dæmi eru:

BEGIN – CATCH – DRIVE – FEEL – GIVE – HAVE – KNOW 

– MAKE – PUT – RING – SAY – TAKE – WRITE

 

 

 

Fyrri hluti:

Begin (að byrja) – began (byrjaði) – begun (byrjað)

Drink – drank – drunk (drekka – drakk – drukkið)

Ring – rang – rung (hringja – hringdi – hringt)

Sing – sang – sung (syngja – söng – sungið)

 

 

Buy – bought – bought (kaupa – keypti – keypt)

Catch – caught – caught (grípa – greip – gripið)

Bring – brought – brought (koma með – kom með – komið með)

Think – thought – thought (hugsa – hugsaði – hugsað)

 

 

Draw – drew – drawn (teikna – teiknaði – teiknað)

Fly – flew – flown (fljúga – flaug – flogið)

Know – knew – known (vita – vissi – vitað)

Throw – threw – thrown (kasta – kastaði – kastað)

 

Drive – drove – driven (keyra – keyrði – keyrt)

Eat – ate – eaten (borða – borðaði – borðað)

Fall – fell – fallen (falla – féll – fallið)

Forget – forgot – forgotten (gleyma – gleymdi – gleymt)

Give – gave – given (gefa – gaf – gefið)

Ride – rode – ridden (ríða – reið – riðið)

Speak – spoke – spoken (tala – talaði – talað)

Take – took –taken (taka – tók – tekið)

Write – wrote – written (skrifa – skrifaði – skrifað)

 

Síðari hluti:

Put – put – put (setja – setti – sett)

Shut – shut – shut (loka – lokaði – lokað)

Read – read – read (lesa – las – lesið) – athugið samt að framburðurinn breytist!

 

Build – built – built (byggja – byggði – byggt)

Feel – felt – felt (finna – fann – fundið)

Get – got – got (fá – fékk – fengið)

Have – had – had (hafa – hafði – haft)

Hear – heard – heard (heyra – heyrði – heyrt)

Leave – left – left (fara – fór – farið)

Make – made – made (gera – gerði – gert)

Say – said – said (segja – sagði – sagt)

Sit – sat – sat (sitja – sat – setið)

Sleep – slept – slept (sofa – svaf – sofið)

Stand – stood – stood (standa – stóð – staðið)

Tell – told – told (segja – sagði – sagt)

 

Run – ran – run (hlaupa – hljóp – hlaupið)

Come – came – come (koma – kom – komið)

 

Go – went – gone (fara – fór – farið)

Do – did – done (gera – gerði – gert)

See – saw – seen (sjá – sá – séð)

 

 

 

 

Þáliðin tíð
Skilyrðissetningar
Óbein ræða
Þolmynd
bottom of page