CAN YOU HEAR ME?
Horfðu og hlustaðu á myndbandið hér fyrir neðan og leystu EITT eftirfarandi verkefna.
Þetta myndband er gert í lok árs 2015 um það sem mun gerast 2016. Til að leysa verkefnin þarft þú að sigta út aðalatriðin og láta koma fram hvað skiptir máli í hverri frétt (forspá) fyrir sig.
1-3 manna verkefni.
Skil á Showbie.
A.
Settu þig í hlutverk spákonu og spáðu fyrir um það sem mun gerast árið 2016, samkvæmt þessu myndbandi. Þetta er hægt að gera hvort sem er í myndbandi eða rituðu formi.
B.
Búðu til fréttaþátt þar sem þú segir aðalfréttir ársins 2016, samkvæmt myndbandinu.
C.
Skrifaðu stutta frétt um hvert atriði fyrir sig og settu saman í fréttablað.