Það var búið að vara ykkur við því að margar algengar sagnir beygðust ekki samkvæmt reglum, það er að segja, þær bæta ekki við sig –ed í þátíð. Þær fara eftir sínum eigin reglum og þið þurfið einfaldlega að læra þær utanað. Sumar beygjast á svipaðan hátt þannig að það er hægt að skipta þeim í hópa. Aðrar eru afskaplega spes og neita að vera eins og aðrar sagnir. Þið þurfið að kunna þær allar og ekki bara þátíðina heldur líka lýsingarhátt þátíðar.
Begin (að byrja) – began (byrjaði) – begun (byrjað)
Þær sagnir sem beygjast á svipaðan hátt eru:
Drink – drank – drunk (drekka – drakk – drukkið)
Ring – rang – rung (hringja – hringdi – hringt)
Sing – sang – sung (syngja – söng – sungið)
Svo eru það þessar:
Buy – bought – bought (kaupa – keypti – keypt)
Catch – caught – caught (grípa – greip – gripið)
Bring – brought – brought (koma með – kom með – komið með)
Think – thought – thought (hugsa – hugsaði – hugsað)
Og þessar:
Draw – drew – drawn (teikna – teiknaði – teiknað)
Fly – flew – flown (fljúga – flaug – flogið)
Know – knew – known (vita – vissi – vitað)
Throw – threw – thrown (kasta – kastaði – kastað)
Þessar eru soldið líkar:
Drive – drove – driven (keyra – keyrði – keyrt)
Eat – ate – eaten (borða – borðaði – borðað)
Fall – fell – fallen (falla – féll – fallið)
Forget – forgot – forgotten (gleyma – gleymdi – gleymt)
Give – gave – given (gefa – gaf – gefið)
Ride – rode – ridden (ríða – reið – riðið)
Speak – spoke – spoken (tala – talaði – talað)
Take – took –taken (taka – tók – tekið)
Write – wrote – written (skrifa – skrifaði – skrifað)
Sumar breytast ekki neitt:
Put – put – put (setja – setti – sett)
Shut – shut – shut (loka – lokaði – lokað)
Read – read – read (lesa – las – lesið) – athugið samt að framburðurinn breytist!
Sumar eru eins í þátíð og lýsingarhætti:
Build – built – built (byggja – byggði – byggt)
Feel – felt – felt (finna – fann – fundið)
Get – got – got (fá – fékk – fengið)
Have – had – had (hafa – hafði – haft)
Hear – heard – heard (heyra – heyrði – heyrt)
Leave – left – left (fara – fór – farið)
Make – made – made (gera – gerði – gert)
Say – said – said (segja – sagði – sagt)
Sit – sat – sat (sitja – sat – setið)
Sleep – slept – slept (sofa – svaf – sofið)
Stand – stood – stood (standa – stóð – staðið)
Tell – told – told (segja – sagði – sagt)
Enn aðrar eru eins í nafnhætti og lýsingarhætti:
Run – ran – run (hlaupa – hljóp – hlaupið)
Come – came – come (koma – kom – komið)
Svo eru sumar sem eru bara með stæla:
Go – went – gone (fara – fór – farið)
Do – did – done (gera – gerði – gert)
See – saw – seen (sjá – sá – séð)