top of page

 

 

 

 

 

 

Skoðum aðeins muninn á tveimur setningum á ensku:

 

I went to a movie when I was six and was really scared.

I have gone to a lot movies since and I usually enjoy it.

 

Í fyrra tilvikinu er verið að tala um einstakan liðinn atburð og þess vegna er notuð einföld þátíð.

 

Í seinni setningunni er ekki verið að tala um einstakan atburð heldur marga og þeir eru ekki staðsettir í tíma. Þess vegna er notuð núliðin tíð.

 

Núliðin tíð er mynduð með hjálparsögninni HAVE og lýsingarhætti þátíðar.

 

Skoðum nokkur dæmi:

 

Where have you been?

I’ve bought a new shirt.

He’s done something really stupid.

It’s all gone wrong.

Have we met before?

 

Athugið að í öllum dæmunum hér að ofan er tímasetning óljós. Ef hún skipti máli væri sagt: 

 

Where were you this morning? 

I bought a new shirt today. 

He did something really stupid last night. 

It all went wrong when the car broke down.

Did we meet last year?

 

Eitt atriði sem er gott að muna:

Ef sá sem er talað um fór eitthvert og er kominn aftur er notað BEEN, en ef hann fór eitthvert og er þar enn er notað GONE.

 

Dæmi:

He’s gone to the movies but you can catch him if you run.

He’s been to the movies but now he’s inside watching TV.

 

Samsett núliðin tíð

 

Samsett núliðin tíð er rökrétt næsta skref, er það ekki?

 

Hún er notuð þegar maður er að tala um eitthvað sem hefur verið að gerast í einhvern tíma, hvort sem það eru mörg þúsund ár eða nokkrar sekúndur. Það sem hefur verið að gerast gæti verið hætt að gerast en gæti líka enn verið að gerast. Þetta hljómar flókið en tökum dæmi:

 

I have been teaching English for a few years.

He has been going to the gym for a couple of weeks.

 

Einnig er hægt að segja:

 

I have been teaching English since 2004.

He has been going to the gym since the start of January.

 

FOR er notað ef það er verið að segja frá því hversu lengi þetta hefur staðið, en SINCE ef það er verið að segja frá því hvenær það byrjaði.

 

 

Æfingar:

 

Æfing 1

Æfing 2

Æfing 3

Æfing 4

Æfing 5

Æfing 6

Æfing 7

Æfing 8

Æfing 9

Æfing 10

 

 

 

 

 

Núliðin tíð

bottom of page