Eignarfall
Eignarfall á ensku er myndað á tvennan hátt eftir því hvað er verið að tala um.
S-eignarfall
Ef talað er um fólk eða dýr (eða einhvers konar persónur) er bætt við –‘saftan við orðið.
Það er afar mikilvægt að leggja á minnið HVAR úrfellingarkomman kemur. Reglan er svona:
Í eintölu er úrfellingarkomman á undan s:
My English teacher’s clothes are terribly ugly.
Í fleirtölu eru úrfellingarkomman á eftir s:
Actually, all the teachers’ clothes are ugly. Where do they buy them?
Ástæðan fyrir þessu er auðvitað að í fleirtölu endar orðið á –s og það er asnalegt að hafa tvö viðbætt –s aftan á orði, eins og svona:
The teachers’s haircuts are stupid too.
Undantekning
Sum ensk orð hafa óreglulega fleirtölu – það er að segja, þau taka ekki venjulegt fleirtölu-s, en þá fer úrfellingarkomman aftur á sinn stað:
The children’s toys are all over the floor.
OF-eignarfall
Ef talað er um hluti eða hugmyndir er notast við forsetninguna OF til að mynda eignarfall:
The days of the week are seven.
Þessi regla virkar eins bæði í eintölu og fleirtölu:
The window of the house is broken.
The windows of the house are broken.