Einföld nútíð
Þegar talað eru um REGLUBUNDNA ATBURÐI eða ÁSTAND er notað það sem kallast einföld nútíð.
Reglubundinn atburður er atburður sem gerist reglulega, til dæmis klukkan hvað maður fer á fætur:
Albert GETS up at six o’clock.
Ástand er eitthvað sem er viðvarandi, til dæmis hvar maður á heima.
Albert LIVES in Birmingham.
Beyging sagnorða í einfaldri nútíð er afskaplega einföld. Það eina sem þú þarft að muna er að í þriðju persónu eintölu bætist –s aftan við sagnorðið, eins og til dæmis:
I play the piano very well.
You play the piano very well.
He play-S the piano very well.
Ef um neikvæðar fullyrðingar eða spurningar er að ræða þarf að notast við hjálparsögnina TO DO (sjá um notkun hennar á síðu A3-2):
I don’t play the piano very well.
Do you play the piano very well.
Sem sagt það má ekki segja:
I play not the piano very well.
Play you the piano very well?