top of page

 

 

 

 

 

 

Einföld nútíð

Þegar talað eru um REGLUBUNDNA ATBURÐI eða ÁSTAND er notað það sem kallast einföld nútíð.

Reglubundinn atburður er atburður sem gerist reglulega, til dæmis klukkan hvað maður fer á fætur:

Albert GETS up at six o’clock.

Ástand er eitthvað sem er viðvarandi, til dæmis hvar maður á heima.

Albert LIVES in Birmingham.

 

Beyging sagnorða í einfaldri nútíð er afskaplega einföld. Það eina sem þú þarft að muna er að í þriðju persónu eintölu bætist –s aftan við sagnorðið, eins og til dæmis:

I play the piano very well.

You play the piano very well.

He play-S the piano very well.

 

Ef um neikvæðar fullyrðingar eða spurningar er að ræða þarf að notast við hjálparsögnina TO DO 

I don’t play the piano very well.

Do you play the piano very well.

Sem sagt má ekki segja:

I play not the piano very well.

Play you the piano very well?

 

Samsett nútíð

Þegar talað eru um tiltekna atburði er notast við það sem kallað er samsett nútíð.

Tiltekinn atburður er eitthvað sem er að gerast um leið og sagt er frá því:

Albert IS GETTING up because it’s six o’clock.

Albert IS LIVING in Birmingham for the next few months but then he’ll go back home.

 

Beygingin er afar einföld, það er einungis hjálparsögnin TO BE sem beygist, en aðalsögnin er alltaf í lýsingarhætti nútíðar, það er að segja með endingunni –ING.

I AM PLAYING the piano.

You ARE PLAYING the piano.

He IS PLAYING the piano.

They ARE PLAYING the piano.

 

Ef um neikvæðar fullyrðingar eða spurningar er að ræða breytist lítið:

Am I playing the piano?

Are you playing the piano?

He isn’t playing the piano.

They aren’t playing the piano.

 

 

Æfingar:

 

Æfing 1

Æfing 2

Æfing 3

Æfing 4

Æfing 5

Æfing 6

Æfing 7

Æfing 8

Æfing 9

Æfing 10

 

 

Einföld og samsett nútíð

bottom of page