Fleirtala
Plural
Oftast er fleirtala nafnorða búin til með því að bæta s aftan við orðið:
Sister = sisters
mother = mothers
car= cars
Ef orðið endar á –s –sh –ch –x er bætt við es (borið fram -iz) aftan við orðið:
Bus = buses
dish=dishes
church= churches
box=boxes
Á eftir orðum sem enda á –o er líka stundum bætt við –es:
Cargo=cargoes (farmar)
potato = potatoes
hero=heroes
Nokkrar undantekningar á o-reglunni
-
orð sem eru tiltölulega ný í málinu og hljóma erlend:
-
cellos, dynamos, pianos, photos.
-
-
orð sem enda á o með undanfarandi sérhljóða:
-
radios, studios, portfolios, cuckoos, bamboos.
-
Í nafnorðum þar sem samhljóði kemur á undan y í eintölu breytist y í einfalt i í fleirtölu og BÆTIR við sig –es:
A cry = cries
a lady= ladies
a fly= flies (flugur)
Nokkur orð sem enda á –f eða –fe í eintölu breyta því í v í fleirtölu og BÆTA síðan við sig –-es :
a calf = calves
a knife = knives
a wife = wives
a leaf = leaves
a wolf =wolves
a half = halves (helmingar)
a thief = thieves
a life = lives
a shelf=shelves (hillur)
Nokkur nafnorð hafa óreglulega fleirtölu:
A Child = children (börn)
a louse = lice (lýs)
a sheep = sheep (kind)
a foot =feet (fætur)
a mouse = mice (mýs)
a goose = geese (gæsir)
an ox = oxen (uxar)
(listinn er ekki tæmandi)
Til athugunar:
Sum orð eru eingöngu notuð í fleirtölu:
Trousers, jeans, shorts, tights, pyjamas = (allt buxur af einhverju tagi.)
Sum orð sem enda á –s eru samt eintöluorð:
Mathematics, physics, economics, athletics (fimleikar) NEWS (fréttir)
Með orðinu Police er alltaf notuð sögn í fleirtölu: “The police are here”.
Æfing 4 (ef þú nærð yfir 80% máttu halda áfram)