top of page
Lýsingarorð
-adjectives
Ensk lýsingarorð eru óbreytt í kyni, tölu og falli:
She is a clever woman. They are clever men.
Flest lýsingarorð má nota bæði hliðstætt (sem einkunn á undan nafnorði)
It's a hot day
og sérstætt (sem sagnfylling)
The day is hot.
Nokkrar undantekningar eru til. T.d. eru:
ill, well, afraid, alive, alone, asleep og nokkur fleiri orð aðeins notuð sérstæð:
He is alive.
Ekki má segja: He is an alive person.
Lýsingarorð án nafnorðs, en með the, eru notuð um heila flokka einstaklinga:
The poor are often happier than the rich.
bottom of page