top of page

Enska 9. bekkur

 

Markmið: 

 

Að nemandi geti:

 

  • Að nemandi geti:

  • tjáð sig áheyrilega um málefni sem hann þekkir og beitt tungumálinu af nokkurri nákvæmni.

  • tjáð sig með undirbúið eða óundirbúið efni sem hann þekkir, hefur hlustað á, lesið um eða unnið með í námi sínu, sagt skoðun sína á því og brugðist við spurningum.

  • samið, æft og flutt frumsamið efni, t.d. stutt atriði eða sögu, einn eða í félagi við aðra.

  • tileinkað sér aðalatriði úr kynningum og frásögnum sem eru innan áhuga-, náms- og þekkingarsviðs hans og brugðist við efni þeirra, sagt frá, unnið úr eða nýtt sér á annan hátt.

  • lesið sér til gagns og ánægju almenna texta af ýmsum toga með nokkuð fjölþættum orðaforða.

  • aflað sér upplýsinga úr texta, greint aðalatriði frá aukaatriðum, gert sér grein fyrir helstu niðurstöðum og nýtt sér í verkefnavinnu.

  • sýnt fram á að hann þekkir vel til mannlífs og menningar á viðkomandi málsvæði og gerir sér vel grein fyrir hvað er líkt eða ólíkt hans eigin aðstæðum.

  • getur greint á milli helstu afbrigða tungumálsins, t.d. hvað er danska, norska, sænska, færeyska, skoska, ameríska.

  • tjáð sig um skoðanir sínar, tilfinningar, reynslu og þekkingu.

  • skrifað ýmsar gerðir af textum, bæði formlega og óformlega.

 

Námsefni:

 

Námsefni haustannar er aðgengilegt inni á merkjasíðu unglingadeildarinnar (ullonollo.wix.com/merkin). Við námsefnisgerð er helst stuðst við Spotlight 8, kennslubók í ensku fyrir unglingastig grunnskóla.

 

 

 

Verklag og vinnuskil:

 

 5 merki eru unnin á önninni:

-Málfræðimerki

-Skáldsögumerki

-3 merki að eigin vali

Auk lokaverkefnis og smærri tímaverkefna.

 

 

Námsmat:

 

        Merki 60%

        Lokaverkefni 10%

        Vinnuskil og mæting 20%

        Hlustunarpróf  5%

        Munnlegt próf  5%

 

 

 

 

 

 

 

 

bottom of page