Showbie - ULLMA
JÓLAMATURINN
Þið vinirnir búið saman í íbúð í Reykjavík.
Þið ákveðið að halda jólin saman í ár. Á aðfangadagskvöld viljið þið hafa hátíðlegan, jólalegan og góðan mat. En það er þrautin þyngri því að þið komið öll frá mismunandi heimilum og erfitt að gera öllum til geðs.
-
Búa til matseðil (munið eftir drykkjum) og skrá niður allt sem þið þurfið að kaupa.
-
Veljið tvo úr hópnum til að fara til kennara sem deilir með þeim skjali.
-
Fyllið inn í skjalið. Þið þurfið bæði að skrá magn og verð.
-
Þegar skjalið er útfyllt skulið þið sýna kennaranum.
-
Notið niðurstöður skjalsins til þess að búa til skemmtilega kynningu á ykkar matseðli og kostnaði hans.
-
dæmi um kynningarforrit: keynote, presentation í sheets, educreations, pages, haiku deck, imovie og fleira.
-
Mikilvægt er að tiltaka allan mat og drykk.
-
Nauðsynlegt er að hafa mynd af skífuritinu sem myndast í skjalinu ykkar.
-
Námsmat:
-
Innihald verkefnis
-
Glæsileiki kynningar
-
Samvinna í hóp
16.-17. desember kynnið þið verkefnið ykkar fyrir hinum hópunum!
SKILA KYNNINGU Á SHOWBIE Í SÍÐASTA LAGI KL: 23:46 ÞANN 19. DES 2014